|

Hún er aðeins 17 ára gömul ensterk í anda og nógu ákveðin til að komast áfram. Safura er þegar sigurvegari- þar sem hún vann forkeppni Júróvisjón2010 í Aserbaídsjan. Hún fæddist 20. september 1992. Safura kemur úr skapandifjölskyldu. Faðir hennar er listamaður og móðir hennar er píanóleikari og tískuhönnuður.
Fyrir atbeina foreldra sinna fórSafura snemma að hafa mikinn áhuga á tísku. Hún sýndi óvenjulega hæfileika semupprennandi tískuhönnuður þegar hún hannaði sjálf fyrstu búningana sína með aðstoð móður sinnar.
Sannarlega liggja þó mestuhæfileikar Safura í tónlist og aðalástríða hennar er söngurinn. Hún var þriggjaára þegar hún byrjaði að syngja. Sex ára kom hún fyrst fram á sviði. Og allatíð síðan hefur hún tekið þátt í allskonar keppnum. Hún sigraði ,,Yene Ulduz”sem er nokkurs konar Idol Aserbaídsjana. Safura er ungt kyntákn í Aserbaídsjan.Þessi blóðheita unga kona er hinn fullkomni fulltrúi Aserbaídsjan – lands eldsins. Hún er sjálfsörugg, flott og hæfileikarík.
Safura útskrifaðist úrtónlistarskóla þar sem hún lærði á fiðlu, þótt hana hafi alltaf dreymt um aðlæra á saxófón. Og ef þú þráir eitthvað nógu heitt þá ferðu og gerir það. Nú erSafura sem sagt eina kvenstjarnan í Aserbaidsjan sem kann að spila á það erfiðahljóðfæri! Bráðum er hún tilbúin til að sýna allri Evrópu hæfileika sína í Júróvisjón söngvakeppninni.
Þátttakan í Júróvisjón 2010 er uppfylling drauma Safiru. Aðaltilgangurlífs hennar er nú keppnin. Safura er frábarnæsku vön að vera afrekskona. Hún mun ekki gefast upp, sama hvað gerist.Aðalsvið Evrópu bíður hennar ásamt einstöku tækifæri til að hefja söngferilinn fyrir alvöru.
Safura leggur hart að sér oglærir eitthvað nýtt á hverjum degi. Hún syngur og dansar. Hún lærir og skapar.Hana dreymir og hún vonar að orð hennar fái hljómgrunn. Hún helgar allan sinntíma, á milli æfinga, tískunni. Uppáhalds hönnuðirnir hennar eru Domenico Dolce og Stefano Gabbana, Jean Paul Gaultier og Mark Jacobs.
Safura er einlægur aðdáandibókaflokksins Ljósaskipti. Hún hefur lesið allar bækur Stephanie Meyer. Húnfylgist með öllum fréttum af framleiðslu myndarinnar um þessa nútímaútgáfu afRómeó og Júlíu, og einnig einkalífi leikaranna. Hún er yfir sig hrifinn afRobert Pattinson sem leikur hina myndarlegu vampíru Edward. Kannski er hún að syngja um hann? Hvað heldur þú?
Hvað um það, meðan hún bíðureftir að hitta Robert Pattinson í eigin persónu helgar Safura alla sína kraftaJúróvisjón 2010. Hennar helsta markmið þessa stundina er að sýna alla ástina semhún býr yfir í einstaka laginu sem hún flytur. Hún er tilbúin til að deila hinum djúpu unglings tilfinningum sínum með milljónum manna um alla Evrópu.
|